Innlent

Meðalhitinn lægri en í fyrra

Mynd/Vísir
Þrátt fyrir að meðalhitinn í mars bæði í Reykjavík og á Akureyri hafi verið ríflega yfir meðallagi var meðalhitinn á báðum stöðum heldur lægri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar.  Hitinn í Reykjavík var 3,7 stig, eða 3,1 stig yfir meðallagi, og 2,5 stig á Akureyri, sem er 3,7 stigum yfir meðallagi. Sólskinsstundir í Reykjavík voru 89, eða 22 undir meðallagi, en 109 á Akureyri, eða 33 stundum yfir meðallagi. Á báðum stöðum var úrkoma rúmlega helmingi minni en í meðalári. Mesti sólarhringshiti í Reykjavík var 20. mars, eða 9,5 stig og hefur ekki mælst hærri síðan í mars árið 1948 að hann mældist einu broti úr gráðu hærri. Óvenju hlýtt var um páskana og komst hiti upp í 16,2 stig í Vopnafirði á laugardeginum og í 17,3 stig í Húsafelli á páskadag. Hæsti hiti sem mælst hefur í marsmánuði hér á landi var 18,3 stig, eða einu stigi meira en nú, á Sandi í Aðaldal árið 1948.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×