Innlent

Uppfyllir ekki skyldur sínar

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja telur landbúnaðarráðuneytið ekki uppfylla skyldur sínar um frágang á gamalli laxeldisstöð á Stað í Grindavík. Það er því sjálft farið að rífa mannvirkin og ætlar að senda ráðherra reikninginn. Laxeldisfyrirtækið Atlantslax var með starfsemi í stöðinni fyrir um 20 árum. Fyrirtækið var að mestu í eigu norskra aðila. Fyrir um ári hóf Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja að skrifa landbúnaðarráðuneytinu bréf þar sem þess var óskað að svæðið yrði hreinsað á vegum ráðuneytisins. Erindum Heilbrigðiseftirlitsins var ekki svarað og fyrir stuttu ákvað eftirlitið að svæðið yrði hreinsað á kostnað landbúnaðarráðuneytisins. Þar sem laxeldisstöðin var með rekstur eru tankar, ýmislegt lausadrasl sem mikil fokhætta stafaði af og djúpir brunnar sem fyllt hefur verið upp í með möl. Bergur Sigurðsson, umhverfis- og heilbrigðisfulltrúi, segir að það komi upp nokkrum sinnum á ári að heilbrigðisnefndir þurfi að láta fjarlægja drasl af svæðum á kostnað eigenda og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja gerir ekki greinarmun á einkaaðilum og ríkinu. Hann segir það von Heilbrigðiseftirlitsins að landbúnaðarráðuneytið klári dæmið en mesta hættan sé nú liðin hjá eftir aðgerðir Heilbrigðiseftirlitsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×