Innlent

Íslendingar nota hótelin meira

Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 2,5 prósent milli ára vegna Íslendinga sem í meira mæli gista á hótelunum. Gistinóttum þeirra fjölgaði um rúm fimmtán prósent en erlendra gesta um 2,4 prósent. Ríflega fjórðungi fleiri kusu að gista á hótelum á Norðurlandi í febrúar í ár en í fyrra og fjölgar hótelnóttunum mest þar. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum var samdráttur um rúm sex prósent en gistinóttum fjölgaði um þrjú prósent á Höfuðborgarsvæðinu. Gistinætur á hótelum í febrúar voru 55.010 en 53.650 í fyrra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×