Innlent

Matvælaverksmiðjur stórskemmdust

Tvær af þremur matvælaverksmiðjum Geest í Barton á Bretlandi, sem Bakkavör er að kaupa, stórskemmdust í eldi í fyrrakvöld. Þar var framleitt pasta og brauð og verður hluti þeirrar framleiðslu að líkindum fluttur yfir í svipaða verksmiðju félagsins annars staðar. Nokkur hundruð manns unnu í verksmiðjunum en bruninn mun þó ekki hafa áhrif á bindandi tilboð Bakkavarar í Geest, samkvæmt tilkynningu frá félaginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×