Sport

Bjarni æfir með Odd Grenland

Bjarni Ólafur Eiríksson, knattspyrnumaður í Val, hélt í morgun til Noregs og æfir með norska liðinu Odd Grenland fram að helgi. Í norska blaðinu Varden í morgun er sagt frá komu Bjarna Ólafs til Noregs og haft eftir þjálfara Odd Grenland, Gaute Larsen, að Bjarni sé efnilegur leikmaður. Gaute Larsen og aðstoðarmaður hans, Arne Sandstø, fylgdust með Bjarna Ólafi í leikjum með Valsliðinu í sumar. Odd Grenland er í sjöunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar um miðja deild. Þjálfarinn segir í samtali við Varden að norska félagið hafi sett sig í samband við Valsmenn enda er Bjarni Ólafur samningsbundinn félaginu út næsta ár. „Við verðum að hafa hraðar hendur,“ segir þjálfarinn en annað norskt lið Vålerenga í Osló hefur einnig sýnt Bjarna Ólafi mikinn áhuga. Gaute Larsen, þjálfari Odd Grenland, segir í samtali við norska blaðið Varden að Bjarni Ólafur sé með öflugan vinstri fót og kostir hans séu auk þess þeir að hann sé góður sóknarbakvörður og mjög duglegur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×