Formaður hvetur KR-inga til að kjósa 4. nóvember 2005 13:35 Mynd/Hilmar
Guðjón Guðmundsson, formaður KR, hvetur KR-inga til að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðismanna tvo tiltekna frambjóðendur sem bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem hóst í dag. Sjálfstæðismenn kjósa í dag og á morgun um hverjir skulu skipa níu efstu sæti á framboðslista flokksins í kosningum til borgarstjórnar næsta vor. Baráttan hefur að mestu snúist um hver mun skipa efsta sæti listans. Það er líka hiti í baráttunni um sætin þar fyrir neðan og hefur nú Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, blandað sér inn í baráttunna með áberandi hætti. Þannig hvetur formaður félagsins alla KR-inga sem ætla að taka þátt í prófkjörinu til að kjósa Benedikt Geirsson og Kjartan Magnússon í þau sæti sem þeir óska eftir í prófkjörinu. Á heimasíðu KR-inga segir formaðurinn Guðjón Guðmundsson, að Kjartan Magnússon borgarfulltrúi og Benedikt Geirsson hafi sinnt íþróttunum mjög vel. Orðrétt segir formaðurinn; "Ég hvet KR-inga til að styðja þessa menn og óska þess sérstaklega að Kjartan fái það sæti sem hann sækist eftir." Ekki tókst að ná sambandi við Guðjón fyrir fréttir, en fréttastofan hafði samband við framkvæmdarstjóra KR í morgun og vildi hann ekki tjá sig um það hvort þessi áskorun formannsins væri eðlileg. Þá hafði fréttastofan samband við varaformann félagsins sem var ekki tilbúinn að tjá sig nú fyrir hádegi en hann er staddur í Bandaríkjunum og því árla morguns hjá honum. Hann sagðist reiðubúinn til þess eftir hádegi.
Mest lesið Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum Innlent Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Erlent „Það fer enginn lífvörður út í“ Innlent Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Innlent Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Erlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Sjá meira