Herinn hafi orðið að skjóta 14. maí 2005 00:01
Sjónarvottar og fulltrúi mannréttindasamtaka í Úsbekistan segja að um fimm hundruð manns hafi fallið í skotárás hersins í borginni Andian, í gær. Forseti landsins segir að herinn hafi orðið að skjóta á mannfjöldann til að bæla niður uppreisn. Engar áreiðanlegar fréttir hafa borist af mannfalli í Úsbeskistan eða myndir enda hefur erlendum fréttamönnum verið vísað frá Andijan. Islam Karimov, forseti Úsbekistans, segir að hernum hafi verið nauðugur einn kostur að hefja skothríð til þess að berja niður uppreisn í Andijan. Hann sagði að tíu hermenn hefðu fallið og miklu fleiri óbreyttir borgarar en nefndi enga tölu um þá. Undanfarna átján mánuði hafa leiðtogar Georgíu, Úkraínu og Kirgisistan hrökklast frá völdum í friðsamlegum byltingum. Islam Karimov er hins vegar einn af verstu harðstjórunum á þessu svæði og hann er greinilega tilbúinn að beita hernum til þess að halda völdum. Karimov hefur verið einráður í Úsbekistan frá því 1989. Mannréttindasamtök segja að að minnsta kosti sex þúsund pólitískir fangar séu í fangelsum í Úsbekistan og pyntingar séu þar algengar. Evrópusambandið hefur fordæmt Karimov forseta, fyrir harðstjórn hans en Rússar segjast styðja hann. Þegar innrásin var gerð í Afganistan keypti Karimov sér velvild á Vesturlöndum með því að leyfa bandarískum herflugvélum að nota flugvelli í landinu, en Úsbekistan á landamæri að Afganistan. Úsbekistan er á stærð við Svíþjóð. Landið var áður eitt af lýðveldum Sovétríkjanna. Íbúar þar eru um 26 milljónir. Úsbekistan er nokkuð stöndugt ríki miðað við það sem gerist í þessum heimshluta. Þar eru miklar birgðir af olíu og gasi í jörðu og mikil gull- og baðmullarframleiðsla. Lífsins gæðum er hins vegar mjög misskipt og sár fátækt er í mörgum héruðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Erlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Erlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Fleiri fréttir Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Sjá meira