Engar skipanir í Baugsmálinu 11. október 2005 00:01
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir réttarkerfið ekki hafa sagt sitt síðasta í Baugsmálinu, þrátt fyrir að aðeins átta af fjörutíu upphaflegu ákæratriðunum standi eftir. Ráðherra telur best fyrir alla sem að málinu koma að það verði tekið til efnismeðferðar fyrir dómstólum. Björn sagði á heimasíðu sinni í gær að að réttarkerfið hefði ekki sagt sitt síðasta í Baugsmálinu. Björn sagði í dag í samtali við fréttastofu: "Málið er enn fyrir héraðsdómi og því hefur ákæruvaldið enn heimildir til að halda áfram með málið og taka upp þá liði ákærunnar sem hæstiréttur taldi ábótavant í gær," sagði Björn og vísaði því alfarið á bug að hann væri að gefa fyrirmæli um framhald málsins. Í Ísland í bítið í morgun sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, að framsóknarmenn gætu ekki borið ábyrgð á Birni Bjarnasyni. Björn segist ekki átta sig á því mati Kristins; málið sé ekki á sínum herðum enda fyrir dómstólum. "Þetta er fyrir dómstólum og enginn sekur í þessu máli fyrr en dómur hefur fallið." Björn segir aðspurður um álit sitt á niðurstöðu hæstaréttar að hún hafi verið rökstudd og harkalega orðuð að mörgu leyti. Hins vegar hafi ákæruvaldið tekið niðurstöðunni af mikilli alvöru. Björn segir mikilvægt að fá efnislega niðurstöðu í Baugsmálið þar sem verið er að þróa opið þjóðfélag þar sem viðskiptamenn fá tækifæri sem aldrei hafa boðist áður. Hann segir nauðsynlegt að sjá hvar mörkin liggja eins og tekist sé á um í þessu máli. Hann telur þörf á umræðum í kjölfar þess áfellisdóms. Björn vill ekki útilokað að ákæruvaldið í efnahags- og skattamálum verði flutt frá ríkislögreglustjóra til ríkissaksóknara en telur það ólíklegt þar sem ekki séu fordæmi fyrir því í nágrannalöndunum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Glæný könnun og þungavigtarfólk í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira