Greiðsla fyrir fréttalestur óljós 11. október 2005 00:01
Laun útvarpsstjóra eru ákvörðuð af Kjaranefnd samkvæmt núgildandi lögum. Páll Magnússon útvarpsstjóri má því ekki þiggja sérstaka greiðslu fyrir fréttalestur í sjónvarpinu. Hægt er að senda erindi til Kjaranefndar og fá hana til að kveða upp úrskurð um það hvort greiða eigi útvarpsstjóra sérstaklega fyrir lesturinn eða ekki. Útvarpsstjóri er með samtals rúmlega 700 þúsund krónur í mánaðarlaun. Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarps, segir að Páll fái 130 þúsund krónur á mánuði fyrir að lesa fréttir átta sinnum í mánuði. Sér þyki eðlilegt að greiða honum fyrir slík verk samkvæmt samningum eins og öðrum. Innan Ríkisútvarpsins sé hinsvegar öflugt innra eftirlit í starfsmannahaldinu. Ef útvarpsstjóri megi ekki fá greitt fyrir aukaverk þá fái hann það ekki. Hún búist við að hann haldi samt áfram að lesa fréttir. Guðrún Zoega, formaður Kjaranefndar, segir að útvarpsstjóri geti gert fréttalesturinn sem hluta af starfi sínu án þess að fá sérstaklega greitt fyrir það en annars þurfi að senda erindi til úrskurðar hjá Kjaranefnd. Sér þyki líklegt að erindi sé væntanlegt. Páll Magnússon segir að hann hafi lesið um það í DV að hann fái 130 þúsund krónur á mánuði. Hann viti ekki hvort og þá hvernig verði greitt fyrir fréttalesturinn og kveðst fara yfir málið. Hugsanlega ekki fyrr en í næstu viku.
Fréttir Innlent Mest lesið Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent VG og Sanna sameina krafta sína Innlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Innlent Fleiri fréttir „Ekki það sem fundurinn var að samþykkja“ Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira