Sport

Ólympíukyndillinn á tind Everest?

Ólympíukyndillinn gæti verið á leið á tind Everestfjalls. Kínverjar, sem halda Ólympíuleikana árið 2008, eru að íhuga þetta. Þegar Grikkir héldu síðustu leika var farið með kyndilinn um allan heim í sérstakri flugvél en nú á að fara með hann á hæsta tind jarðar og sjónvarpa öllu saman. Varaforseti kínversku undirbúningsnefndarinnar segir ekki vandamál að fara með kyndilinn á toppinn, í sérstöku súrefnishylki, en það gæti orðið snúið að sjónvarpa öllu saman. Fyrir fimm árum fóru Kínverjar á tind Everest með kyndil í tengslum við íþróttaviðburð minnihlutahópa þar í landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×