Deila um endurgreiðslu kauphækkana 12. október 2005 00:01
Sjúkraliðar hafa vísað deilu sinni við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu til Ríkissáttasemjara. Félögin gengu frá kjarasamningi í sumar en deila nú um framkvæmd hans. Einkum fer það fyrir brjóstið á sjúkraliðum að þeir voru rukkaðir um endurgreiðslu þeirrar hækkunar sem þeir höfðu þegar fengið þegar nýi samningurinn tók gildi. Undir lok síðasta árs var gengið frá skammtímasamningi sem færði sjúkraliðum á fjórtán stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, eins og hálfs prósents launahækkun þar til gengið yrði frá nýjum kjarasamningi. Sá samningur var samþykktur fyrir nokkru og færir sjúkraliðum níu komma fjórtán prósenta launahækkun, sem er sama hækkun og sjúkraliðar hjá ríkisstofnunum fengu. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir það hins vegar hafa komið sjúkraliðum í opna skjöldu þegar launahækkanir sem þeir fengu fyrstu sex mánuði ársins voru dregnar af launum þeirra eftir að nýi samningurinn tók gildi. Hún segir sjúkraliða hafa verið sátta við að gefa eftir eins og hálfs prósents hækkunina þegar nýi samningurinn tók gildi en ekki endurgreiða það sem þeir höfðu þegar fengið greitt. Kristján Sigurðsson, sem fer fyrir samninganefnd Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, segir mikilvægast í þessu að sjúkraliðar hjá sjálfstætt reknum stofnunum hafi fengið sömu launahækkun og sjúkraliðar hjá ríkinu. Nú sé deilt um framkvæmd þess en hann segist bjartsýnn á að deilan leysist. >
Fréttir Innlent Mest lesið Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Segist vilja komast til himna Erlent Ísland frumstætt samanborið við Noreg Innlent Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Innlent „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Innlent Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Innlent Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Innlent Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Innlent Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Erlent Fleiri fréttir Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Tilkynnt um par að slást Norskir kafarar og dularfullur hraðbankaþjófnaður Líkið ekki innan um aðra sjúklinga Norsku kafararnir mættir í Haukadalsá Ekki allt sem sýnist varðandi launin Húsleit á heimili þekkts brotamanns Hraðari aflögun í Krýsuvík en áður Þess sem stýrir rannsókn að ákveða lengd símabanns fanga Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Sóttu skipverja á rússnesku skipi langt út á sjó og svo beint í Hrafntinnusker Kanna starfshætti, verklag og aðstæður Vöknuðu með rottu upp í rúmi Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Sjá meira