Mikið verk fyrir höndum hjá Atla 12. júlí 2005 00:01
Þróttarar héldu hreinu í fyrsta leiknum undir stjórn Atla Eðvaldssonar en það dugði þó aðeins í eitt stig gegn Skagamönnum sem hafa haldið hreinu í 315 mínútur í Landsbankadeildinni. Leikur Þróttar og ÍA verður ekki lengi í minnum hafður. Bæði lið voru varkár í leik sínum og tóku ekki mikla áhættu, sérstaklega í seinni hálfleik, og endaði leikurinn 0-0 í daufum leik. Atli Eðvaldsson var að stjórna liði Þróttar í fyrsta skipti í sumar, en hann tók nýlega við þjálfun liðsins af Ásgeiri Elíassyni, sem var búinn að stjórna Þrótti í fimm ár á undan. Atli breytti um leikskipulag og spilaði með fjóra í vörn og á miðjunni, en tvo frammi. Ásgeir lék með þrjá menn í vörn, fimm á miðjunni og tvo frammi, og virtist þessi breyting hjá Atla skila góðum árangri í upphafi leiks. Leikmenn Þróttar voru baráttuglaðir á upphafsmínútum leiksins í gær og áttu þrjár ágætis marktilraunir á fyrstu fimmtán mínútunum. Páll Einarsson átti glæsilegt skot beint úr aukaspyrnu af 35 metra færi en boltinn small í þverslánni. Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA, lét vel í sér heyra á upphafsmínútunum og virtust óp hans hafa góð áhrif á leikmenn ÍA sem voru líflegir seinni part fyrri hálfleiks. Sérstaklega var Hjörtur Hjartarson líflegur en Fjalar Þorgeirsson, markvörður Þróttar, varði ágætlega í tvígang frá honum. Í seinni hálfleik voru Skagamenn betri. Ellert Jón Björnsson var líflegur á hægri vængnum en hann kom inn á í hálfleik. Þróttarar áttu í erfiðleikum með að byggja upp sóknir, sérstaklega á miðjunni, þar sem Pálmi Haraldsson hafði tögl og hagldir. Fjalar Þorgeirsson varði ágætlega frá Hirti Hjartarsyni um miðjan hálfleikinn, eftir að Eysteinn Lárusson hafði misst Hjört klaufalega fram hjá sér. Ólafur Þórðarsona, þjálfari ÍA, var ekki ánægður með fyrri hálfleik sinna manna. „Það kom leikmönnum mínum einhverra hluta vegna á óvart hvað Þróttarar voru sprækir í byrjun. En við börðumst ágætlega í seinni hálfleik. Við hefðum bara átt að nýta færin betur." Atli Eðvaldsson sagði mikið verk vera fyrir höndum. „Þetta byrjaði ágætlega hjá okkur í kvöld, en svo fóru menn að hlaupa of mikið út úr stöðum. Þetta þurfum við að laga en margt gott var í þessu."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Sport Fleiri fréttir Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Sjá meira