Stefán Jón neitar 19. júlí 2005 00:01
Stefán Jón Hafstein neitar því alfarið að það hafi verið rætt formlega innan raða Samfylkingarinnar að bjóða fram undir merkjum R-Listans, án Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins. Össur Skarphéðinsson segir Stefán hafa setið við hlið sér á fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar þetta var rætt og góður rómur gerður að. Össur Skarphéðinsson hefur undanfarið margítrekað að Samfylkingin ætti að bjóða fram undir merkjum R-listans ein og sér með óháðum, ef ekki næst samstaða með Vinstri grænum og Framsóknarflokki. Í Íslandi í dag í gær gekk Össur lengra og sagði að þetta hefði verið rætt á fundum Samfylkingarinnar við góðar undirtektir. Hann sagði þennan möguleika hafa verið í umræðu m.a. innan Samfylkingar töluvert lengi. Á forsíðu fréttabréfs Samfylkingarinnar í lok síðasta árs hafi verið greint frá þessum hugmyndum og þar einnig komið fram að gerður hafi verið góður rómur að hugmyndunum. Stefán Jón Hafstein kannast ekkert við að þetta hafi verið rætt formlega innan raða Samfylkingarinnar og því síður að hann hafi lýst sig hlynntan þessu. Í samtali við fréttastofu sagði hann að allt tal í þessa veru hefði verið á algjörlega óformlegum nótum. Einn maður hefði sagt á fundi Samfylkingarinnar að þó að einhver segði sig úr R listanum væri ekki þar með sagt að hann væri dauður. Annað væri það ekki. Þegar fréttastofan bar þetta undir Össur í dag sagðist hann standa við ummæli sín og sagði bæði Stefán Jón og Steinunni Valdísi borgarstjóra hafa setið fundinn og fylgst vel með því sem þar hafi farið fram. Það hafi verið rætt innan raða Samfylkingarinnar að bjóða fram undir merkjum R Listans þó að samstarfið við Vinstri Græna og Framsóknarflokkinn færi út um þúfur og margir lýst stuðningi við þær hugmyndir. Ekki náðist í Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, borgarstjóra, fyrir fréttir.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira