Sjónarhornið á vændiskaupandann 19. júlí 2005 00:01
Fimmtíu til níutíu prósent þeirra kvenna sem leiðast út í vændi hafa verið misnotaðar í æsku, að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins. Goðsögnin um hamingjusömu gleðikonuna er lífseig og snýst um að konan sem selji líkama sinn geri það af fúsum og frjálsum vilja. Í fréttum Stöðvar 2 á laugardagskvöld var viðtal við íslenska vændiskonu sem sagði að sér liði vel með að stunda vændi. Hún léti menn borga sér fyrir kynlíf með sér í stað þess að stunda skemmtistaðina, fara með næturgesti heim og fá ekkert borgað. Félagsfræðingar sem Stöð 2 ræddi við segja svör vændiskonunnar viðhalda goðsögninni um hamingjusömu gleðikonuna. Hún sé þó ekki sönn. Drífa Snædal framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að goðsögnin sé líffseig og um leið nauðsynleg til að viðhalda þeirri peningamaskínu sem vændi er á Íslandi. Hún segir raunveruleikann vera annan því 50-90% þeirra sem leiðast út í vændi hafa verið misnotuð sem börn. Það er búið að fara yfir mörk þessa fólks, útmá eðlileg samskipti og því hafi þeir lítið val. Hún segist sjá svipaða afleiðingu og af nauðgunum og að sumar konur segja að þetta sé svipað og borguð nauðgun og afleiðingarnar eru áfallastreita, þunglyndi, kvíði, sjálfsvígstilraunir og sjálfsvígshugsanir. Vændi er í boði á netinu, í símaþjónustum, dagblöðum, skemmtistöðum, hótelum og fleiri stöðum, án þess að yfirvöld grípi í taumana. Fjöldi kvennasamtaka á Íslandi telur að til bóta væri að gera kaup á vændi ólögleg líkt og í Svíþjóð, en samkvæmt þeim lögum sem hér gilda, er það sá sem selur líkama sinn sem er lögbrjótur og þá aðeins ef hann hefur vændi að aðalstarfi. Drífa segir að Kvennathvarfið vilji beina sér að þeim sem bæði kaupa þjónustuna og segist vera fylgjandi sænsku aðferðinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira