Sport

Armstrong í góðri stöðu

Spánverjinn Oscar Pereiro kom fyrstur í mark á 16. dagleið Frakklandshjólreiðanna Tour de France í dag, þegar hjólaðir voru rúmir 180 kílómetrar frá Mourenx til Pau. Bandaríski meistarinn Lance Armstrong hélt fengnum hlut í heildarkeppninni og fátt virðist geta komið í veg fyrir það, að hann hrósi sigri í hjólreiðunum á sunnudaginn 7. árið í röð. Armstrong er sem fyrr 2 mín. og 46 sek, á undan Ítalanum Ivan Basso, sem er annar, og 3 mín. og 9 sek. á undan Dananum Michael Rasmussen, sem er þriðji. Þjóðverjinn Jan Ullrich, gamall keppinautur Armstrongs, er fjórði tæpum 6 mínútum á eftir honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×