Yfirheyrður vegna sölu vændislista 19. júlí 2005 00:01
Maður, sem er grunaður um að hafa selt lista með nöfnum fimm vændiskvenna á Netinu var yfirheyrður af lögreglunni í Kópavogi í gær. Maðurinn er grunaður um að hafa selt listann í gegnum heimasíðurnar private.is og einkamal.is á sex þúsund krónur. Hann er einnig grunaður um að hafa fengið sextán ára gamla stúlku til að taka við greiðslum frá mönnum sem keyptu vændislistann, til að hylja slóð sína. Í fréttum Stöðvar 2 á föstudag kom fram að maðurinn hafi hitt stúlkuna fyrir utan heimili hennar til að taka við greiðslum sem borist höfðu inn á hennar reikning frá fólki sem keypti vændislistann. Stúlkan hefur verið yfirheyrð af lögreglunni í Kópavogi. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns í Kópavogi er verið að skoða hvernig rannsókninni verður haldið áfram. Aðspurður hvort lögreglan hyggðist ræða við vændiskonurnar sem eru á listanum sagði Friðrik ekki hafa verið tekna ákvörðun um það. Hann sagði einnig að ekki hefði verið ákveðið hvort einkamálavefirnir private.is og einkamal.is verði skoðaðir. Hann gat heldur engu svarað um það hvort maðurinn hafi játað að hafa selt vændislistana. Maðurinn væri engu að síður grunaður um að hafa brotið gegn 206. grein hegningarlaganna þar sem segir að hver sem stuðli að því með ginningu, hvatningu eða milligöngu að aðrir hafi holdlegt samræði eða önnur kynferðismök gegn greiðslu, eða gerir sér lauslæti annarra að tekjulind, svo sem með útleigu húsnæðis eða öðru skuli sæta fangelsi allt að fjórum árum.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira