Innlent

Össur segir ekki nei

Össur Skarphéðinsson segir að mikil umfjöllun sín um málefni R- listans á sama tíma og aðrir aðstandendur listans þegja þunnu hljóði, sé ekki til marks um það að hann  ætli að snúa sér aftur að borgarmálunum og telur afar ólíklegt að nafn hans komi upp sem borgarstjóraefni listans, en útilokar það þó ekki með öllu. Áhugamenn um stjórnmál hafa velt þeim möguleika fyrir sér að með því að gera Össur óvænt að borgarstjórnarefni listans , komi það sem ferskur vindur inn í borgarpólitíkina og leysi hugsanlegan vandræðagang Samfylkingarinnar í R listanum með að velja á milli Steinunnar Valdísar og Stefáns jóns Hafstein, sem borgarstjóraefnis. Hann hafi reynslu af borgarmálum, auk þess sem Össur geti verið vænlegur til að ná almanna hylli meðal kjósenda. Aðspurður segir Össur að þetta komi flatt upp á sig og erfitt sé að bregðast við. Hann sagði einnig að þetta hefði aldrei flögrað að sér, hann væri þingmaður fyrir Reykvíkinga og hefði ekki í hyggju að láta af því. Honum fannst möguleikinn líka töluvert fjarstæðukenndur. Spurður að því hvort að þetta væri útlokað þá gaf hann þau svör að svo væri nánast. Hann sagðist aldrei hafa velt fyrir sér að gefa kost á sér í borgartstjórn en benti á að hann væri gamall varaborgarfulltrúi og þekkti því til. Ef til hans yrði leitað sagði hann að sér sýndist vera meira framboð en eftirspurn og hann efaðist um að á væri bætandi. Hann taldi jafnframt að ekki kæmi til þess að til hans yrði leitað og því gæti hann ekki svarað öðruvísi en að ef "gott fólk kæmi og talaði við menn og biður þá að hugsa mál, þá geri menn það yfirleitt."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×