Sport

Alonso hefur engar áhyggjur

Stigahæsti ökuþórinn í formúlu eitt, Spánverjinn Fernando Alonso, hefur litlar áhyggjur af samkeppni frá heimsmeistaranum Michael Schumacher, þrátt fyrir að meistarinn hafi verið að raka inn stigum undanfarið. Schumacher er kominn inn í myndina eftir að hafa fengið 10 stig í Indianapolis og 8 í Kanada. Ég tel bílinn okkar þó í það góðu standi að við þurfum engar áhyggjur að hafa af samkeppni frá Schumacher, því við vorum með betri stöðu í báðum þessum keppnum áður en halla tók undan fæti. Persónulega finnst mér McLaren liðið vera að gera besta hluti um þessar mundir og því þurfum við að hafa okkur alla við," sagði Spánverjinn ungi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×