Sport

Fjögurra stiga forskot Djurgarden

Djurgarden er með fjögurra stiga forskot á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 útisigur á Landskrona í gær. Kári Árnason lék síðustu mínútur leiksins fyrir Djurgarden. Jóhann B.Guðmundsson lék megnið af síðari hálfleik þegar lið hans, Örgryte, tapaði fyrir Kalmar, 2-1. Örgryte er í tíunda sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×