Innlent

Áfengisauglýsingar hafa aukist í íslenskum prentmiðlum

Í skýrslum sem Lýðheilsustöð lét gera yfir auglýsingar, kynningar og umfjöllun um áfengi og léttöl í íslenskum prentmiðlum, kemur fram að áfengisauglýsingar hafa aukist töluvert á síðustu árum.

Lýðheilsustöð lét taka saman tvær skýrslur varðandi auglýsingar og umfjöllun áfengis og léttöls. Annars vegar er um að ræða skýrslu frá Fjölmiðlavaktinni ehf. um birtingar á 12 mánaða tímabili frá mars 2004 til febrúar 2005 og hins vegar skýrsla Birgis Guðmundssonar við Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri um birtingar árin 1996-2005. Svo virðist sem fjöldi áfengisauglýsinga hafi margfaldast síðastliðinn áratug, samkvæmt skýrslu Birgis, þrátt fyrir að heildarmagn útgefinna blaðsíðna hafi lítið aukist. Fram kemur í skýrslu Fjölmiðlavaktarinnar ehf. að Fréttablaðið sé sá miðill sem birtir hvað mest af áfengistengdu efni, og á það við auglýsingar sem og umfjöllun um áfengi. Áberandi er hversu mikill meiri hluti auglýsinganna snýr að bjór og ná slíkar auglýsingar oft hámarki í kringum verslunarmannahelgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×