Innlent

Safna undirskriftum gegn flutningi flugvallar

Samtökin Áfram eru afsprengi baráttu Svarfdælinga gegn sameiningu sveitarfélaganna við Eyjafjörð.
Samtökin Áfram eru afsprengi baráttu Svarfdælinga gegn sameiningu sveitarfélaganna við Eyjafjörð.

Íbúar í Dalvíkurbyggð eru byrjaðir með undirskriftasöfnun gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri. Áfram, nýstofnuð hagsmunasamtök Dalvíkurbyggðar, standa fyrir undirskriftasöfnuninni og vonast forsvarsmenn hennar til að íbúasamtök og einstaklingar út um allt land taki þátt í söfnuninni með þeim.

Þorkell Ásgeir Jóhannsson, formaður samtakanna, segir baráttuna gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar fyrst og fremst byggða á öryggishagsmunum, einkum sjúkrafluginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×