Verðvernd til hagsbóta fyrir neytendur 27. október 2005 06:00 Jóhannes Gunnarsson
Fyrirtæki á heimilis- og byggingarvörumarkaði, Húsasmiðjan og BYKO, eru nú farin að bjóða viðskiptavinum sínum upp á þjónustu sem kallast verðvernd, en í henni felst að viðskiptavinurinn getur skilað vöru sem hann sér auglýsta á lægra verði, innan tuttugu daga frá kaupunum, og fengið mismuninn greiddan til baka. Verðvernd er ekki ný af nálinni hér á landi því bæði Intersport og Elko, sem tilheyra BYKO-samsteypunni, hafa boðið upp á verðverndina um nokkurt skeið. Bæði Húsasmiðjan og BYKO byrjuðu með þessa þjónustu á þriðjudaginn og greiða þar að auki tuttugu prósent af mismuninum til baka. Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO, segir góða reynslu BYKO-samsteypunnar af verðverndinni, meðal annars í Elko, hafa orðið til þess að ákveðið var að bjóða upp á þennan möguleika í verslunum BYKO. "Mikill undirbúningur liggur að baki þessari nýjung hjá BYKO. Við leggjum áherslu á það að með verðverndinni geti viðskiptavinir treyst því að verslanir okkar keppi að því að bjóða alltaf lægsta fáanlega vöruverð á sömu eða sambærilegri vöru. Okkur fannst mikilvægt að bjóða einnig upp á verðverndina á sambærilegri vöru því margar vörutegundir í verslunum okkar eru ekki þær sömu og annars staðar. Þannig er til dæmis hægt að bera saman skrúfur eða tréplötu við okkur vöru, sem eru sambærilegar að öllu leyti, þó vörurnar séu ekki nákvæmlega þær sömu." Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, segir aukna samkeppni hafa kallað á að fyrirtækið brygðist við. "Það er hluti af okkar stefnu að bjóða alltaf jafn gott eða betra verð heldur en samkeppnisaðilarnir. Það eru mörg ný fyrirtæki komin inn á markaðinn og það er í raun orðið svolítið erfitt að fylgjast með því hvernig verðlagið er í öllum verslunum. Nú viljum við fá almenning í lið með okkur til þess að fylgjast með verðlagningu fyrirtækjanna og halda okkur á tánum." Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir verðverndina ekki skipta sérstaklega miklu máli fyrir hinn almenna neytanda en segir hana þó vera ágætan kost. "Ég held að verðverndin skili fremur litlu til neytenda þegar upp er staðið. Ég myndi vilja sjá að harðnandi samkeppni skilaði sér í lækkuðu vöruverði, um leið og gæðin eru tryggð. Það mætti koma skýrar fram fyrir neytendur hvað átt er við með sambærilegri vöru þegar verðverndin er annars vegar."
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Sjá meira