Innlent

2B synjað um atvinnuleyfi

Gissur Pétursson
Gissur Pétursson

Vinnumálastofnun synjaði í gær beiðni atvinnumiðlunarinnar 2B um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem starfa hér á landi. "Okkur sýnast ekki vera lagaforsendur til þess að afgreiða þessar umsóknir," segir Gissur Pétursson, forstjóri stofnunarinnar.

Lög kveða á um að fyrirtæki þurfi að sýna fram á skort á vinnuafli til þess að hægt sé að veita atvinnuleyfi. "Atvinnumiðlun er ekki í beinni starfssemi og því erfitt með að sýna fram á skort á fólki," segir Gissur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×