Að lækka rafmagnsreikninginn 27. október 2005 04:45 DVD, spilari
Þó rafmagnsreikningarnir séu ekki veigamestu útgjöld heimilanna kostar rafmagnið sitt. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Sambandi sveitarfélaga, segir hægan vanda að haga rafmagnsnotkun þannig að reikningurinn lækki. "Fyrsta ráðið er að hafa rafmagnstæki ekki á "stand by" stillingunni. Á venjulegu heimili fara átta til þrettán prósent allrar raforku í tæki sem slökkt er á." Stefán segir slík tæki leynast víða á heimilum, þekktust séu sjónvörp, myndbandstæki og DVD-spilarar en þetta eigi við um öll tæki sem í eru blikkandi klukkur eða týrandi rauð ljós. Og hann tekur dæmi af borðlampa sem eyðir tólf vöttum þegar slökkt er á honum og 25 vöttum þegar hann logar. "Eitt vatt kostar 75 krónur á ári. Ef þessi lampi væri í sambandi allan ársins hring og aldrei kveikt á honum myndi það kosta 900 krónur á ári." Þeim krónum mætti verja í eitthvað annað og betra. Stefán segir að þegar fólk kaupi sér raftæki sé mikilvægt að horfa ekki bara á verð tækisins heldur líka orkunotkun þess. "Á sífellt fleiri tækjum er evrópsk orkumerking og það er hagkvæmast að kaupa A merkt tæki. Þó tækið kosti meira en annað orkufrekara er hægt að að vinna upp mismuninn og gott betur með lægri rafmagnsreikningi." Hann hvetur líka fólk til að nota sparperur í stað hefðbundinna. "Þær eru reyndar miklu dýrari en nota aðeins einn sjötta eða einn sjöunda af því rafmagni sem hefðbundin pera þarf og að auki þarf að skipta mun sjaldnar um perur." Að endingu nefnir Stefán mikilvægi þess að frystikistur séu hafðar í köldum geymslum fremur en hlýjum og hvetur fólk til að afþíða kistuna nokkrum sinnum á ári þar sem ísuð kista eyði miklu meira rafmagni heldur en kista sem er full af ís.
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira