Sport

Grjótkast og líkamsárásir

Tveir leikmenn gríska liðsins Iraklis þurftu að gista á sjúkrahúsi í nótt eftir að hafa orðið fyrir árás stuðningsmanna Aris Saloniki liðsins. Dómarinn stöðvaði leikinn í fyrri hálfleik þegar staðan var 2-1 fyrir Iraklis. Stuðningsmenn Aris ruddust inná völlinn og einn þeirra skallaði í höfuð markvarðar Iraklis. Um næstu helgi keppir Aris til úrslita í gríska bikarnum en liðið á nú á hættu að vera dæmt niður í 2. deild. Í Rúmeníu þurfti knattspyrnuþjálfari aðhlynningu eftir að áhorfandi kastaði steini í höfuð hans á leik í 1. deildinni um helgina. Á öðrum leik í rúmönsku deildinni gekk forseti Steaua Búkarest í skrokk á stuðningsmanni liðsins sem hafði gagnrýnt félagið fyrir að selja bestu leikmennina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×