Refsing ákveðin síðar 16. maí 2005 00:01
Rússneski olíuauðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky var í morgun fundinn sekur, meðal annars um þjófnað og skattsvik. Málið hefur skaðað orðspor Pútíns Rússlandsforseta enda hefur allur málareksturinn gegn Khodorkovsky sætt mikilli gagnrýni á Vesturlöndum. Dómari hóf í morgun að lesa úrskurð sinn í máli Khodorkovskys og hafði hann verið fundinn sekur um fjögur ákæruatriði af sjö þegar hlé var gert réttarhaldinu til morguns. Þá er búist við úrskurði í þeim þremur ákæruatriðum sem eftir eru en refsing verður hins vegar ekki ákveðin fyrr en síðar. Verjandi Khodorkovskys bendir á að dómarinn hafi ítrekað í morgun vísað til Khodorkovskys sem leiðtoga glæpahóps og segir að málflutningurinn bendi eindregið til þess að niðurstaðan sé gefin. Málareksturinn gegn Khodorkovsky hefur staðið í tæplega tvö ár og sjálf réttarhöldin í tæpt ár. Honum og viðskiptafélaga hans, Platon Lebedev, er gefið að sök að hafa hagnast ólöglega á einkavæðingaferlinu í Rússlandi, fjársvik, skattsvik og fjárdrátt. Margir hafa hins vegar leitað skýringa á þessum málatilbúningi annars staðar því Khodorkovsky var upprennandi stjórnmálamaður í Rússlandi og hatrammur pólitískur andstæðingur Pútíns forseta. Líkur hafa verið leiddar að því að Pútín hafi fyrirskipað handtöku Khodorkovskys til að losa sig við óþægilegan pólitískan andstæðing. Bandaríkjastjórn hefur sérstaklega tekið upp hanskann fyrir Khodorkovsky og gagnrýnt rússnesk stjórnvöld fyrir óheiðarleg vinnubrögð í þessu máli.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira