Sport

David Tua aftur í hringinn

Fyrrum áskorandi í þungavigt, David Tua, mun snúa aftur í hringinn er hann mætir bandaríkjamanninum Talmadge Griffis í 10 lotu bardaga þann 31.mars í Auckland í Nýja Sjálandi, en Tua hefur ekki barist í rúm tvö ár. "Ég hef æft mjög vel og hef misst öll þau kíló sem ég bætti á mig á þessum tveim árum sem ég hef verið í fríi," sagði Tua sem hefur sigrað 42 bardaga, þar af 37 á rothöggi, og aðeins tapað þrem á ferlinum. Meðal þeirra sem Tua hefur sigrað eru fyrrum WBA meistarinn Johnny Ruiz og WBA og IBF meistarinn Hasim Rahman, en Rahman mun mæta núverandi WBA meistaranum í þungavigt, Vitali Klitschko á næstunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×