Róstur í Írak í gær 12. maí 2005 00:01
Ekkert lát er á ofbeldinu í Írak. 21 týndi lífi í fjórum bílsprengjuárásum víðs vegar um landið í gær. Bandarískar hersveitir sækja hart að uppreisnarmönnum sem hafast við nærri sýrlensku landamærunum. Mannskæðasta tilræðið var framið í Bagdad í gærmorgun. Þá sprakk öflug bílsprengja við markaðstorg þar sem fjöldi fólks var á ferli. Sautján heimamenn féllu og 65 særðust. Miklir eldar kviknuðu í kjölfarið í nálægum húsum og létu vegfarendur reiði sína bitna á lögreglu- og blaðamönnum. Bandarískir hermenn skutu úr byssum sínum upp í loftið til að dreifa reiðum múgnum. Matador-aðgerð hersveita Bandaríkjamanna var framhaldið í gær þar sem sótt er að uppreisnarmönnum sem hernámsliðið segir vera á snærum Abu Musab al-Zarqawi, samverkamanns al-Kaída. Til harðra bardaga kom á milli þeirra nærri sýrlensku landamærunum og dóu tveir bandarískir hermenn í átökunum. Ekki er vitað hversu margir uppreisnarmenn féllu. Sjötíu úkaínskir hermenn sneru í gær heim frá Írak og þar með lýkur fyrsta hluta brottflutnings herliðs Úkraínu í Írak. Enn eru nokkur hundruð hermenn eftir en þeir munu snúa heim á næstu mánuðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira