Öcalan fái réttláta málsmeðferð 12. maí 2005 00:01
Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði í gær að Kúrdaleiðtoginn Abdullah Öcalan hefði ekki hlotið sanngjarna málsmeðferð þegar tyrknesk yfirvöld réttuðu yfir honum á sínum tíma. Öcalan var leiðtogi Verkamannaflokks Kúrdistan og stýrði frelsisbaráttu þjóðar sinnar þegar hann var handtekinn árið 1999 og síðar dæmdur til dauða. Árið 2002 breyttu yfirvöld í Ankara dómnum hins vegar í ævilangt fangelsi. Í úrskurði Mannréttindadómstólsins segir að réttarhaldið yfir Öcalan hafi ekki verið sanngjarnt, meðal annars vegna þess að lögfræðingar hans fengu ekki að hafa við hann samband. Dómstóllinn hvetur tyrknesk stjórnvöld til að taka málið upp á nýjan leik og rétta aftur yfir Öcalan. Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, sagði að rækilega yrði farið yfir úrskurðinn en minnti á að skæruliðasveitir Kúrda hefðu drepið fjölda manns. Almenningur í Tyrklandi er Kúrdum andsnúinn og því hefur úrskurður dómstólsins fallið í grýttan jarðveg þar. Tyrkir eru hins vegar í erfiðri stöðu því aðildarviðræður þeirra við Evrópusambandið hefjast í haust og varla er hægt að hugsa sér verri byrjun en að hafa tilmæli Mannréttindadómstólsins að engu.
Erlent Fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira