Innlent

Gáfu Kvennaathvarfinu milljón

Milljón í sarpinn. Drífa Snædal og Þórlaug Jónsdóttir, rekstrarstýra Kvennaathvarfsins, taka við milljón úr hendi Hrund Rudolfsdóttur frá Lyf og heilsu.
Milljón í sarpinn. Drífa Snædal og Þórlaug Jónsdóttir, rekstrarstýra Kvennaathvarfsins, taka við milljón úr hendi Hrund Rudolfsdóttur frá Lyf og heilsu.

Starfsmenn apótekanna Lyf og heilsu færðu Kvenna­athvarfinu eina milljón í styrktarfé í gær þar sem konur sem starfa innan lyfjafyrirtækisins gáfu kvennafrídaginn eftir á mánudaginn.

Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvenna­athvarfsins, segir styrkinn koma athvarfinu sérlega vel. "Styrkurinn fer í sjálfshjálparhópana og verkefni sem liggja fyrir hjá okkur," segir Drífa. Milljónin endist næstu tvö árin.

Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu, segir að vegna lögbundinnar skyldu lyfjaverslana til að veita þjónustu sína hafi hvorki konur né karlar getað lagt niður störf á kvennafrídaginn. Þær hafi þó ekki viljað láta sitt eftir liggja: "Kvennafrídagurinn á að vera kveikjan af breytingum og því er mikilvægt að fylgja honum eftir. Við kjósum því að líta svo á að við séum í forgöngu um að láta þennan dag skila einhverjum árangri."

Drífa segir styrk Lyfjar og heilsu ekki þann eina sem borist hafi í kjölfar kvennafrídagsins. Pétur Pétursson, fyrrum þulur Ríkisútvarpsins, hafi fært þeim hundrað þúsund krónur í minningu sex kvenfrelsiskvenna. Forsvarsmenn Lyfjar og heilsu skora á önnur fyrirtæki að fylgja í kjölfarið og styðja félög sem vinna að jafnréttismálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×