Elliðaárdal sökkt árlega 25. september 2005 00:01
Hluta Elliðaárdals var sökkt undir vatn í vikunni. Þetta gerist reyndar á hverju hausti þegar virkjunin í dalnum er ræst til raforkuframleiðslu. Það er hins vegar engin umræða hjá borgaryfirvöldum um að leggja af virkjunina. Fyrir viku runnu Elliðaárnar niður að stíflunni í tveimur kvíslum og sjá mátti fagra árbakka þar sem veiðimenn standa á sumrin og renna fyrir lax. En nú er veiðitímabilinu lokið og þessir sömu árbakkar komnir á kaf undir margra metra djúpt vatnið. Þó má sjá einstaka trjáplöntur teygja sig upp úr vatnsfletinum. Búið er að fylla lónið á ný; ástæðan er virkjunin sem þarna hefur verið starfrækt í dalnum í 84 ár, og verður það áfram miðað við sjónarmið formanns samráðsnefndar um málefni Elliðaánna, Stefáns Jóns Hafstein. Hann segir hana sögulega mikilvæga auk þess sem hún sé vararaafstöð fyrir Reykjavík. Virkjunarlónin eru raunar tvö sem þjóna Elliðaárstöð því sjálft Elliðavatn meira en tvöfaldaðist þegar það var stíflað. Mikið hefur verið rætt um svæði á hálendinu sem verið er að sökkva. En ættum við kannski að líta okkur nær og spyrja: Er nauðsynlegt að hafa virkjunarlón í útivistarparadís í Reykjavík? Þess má geta að það tekur Búrfellsvirkjun aðeins hálfan dag að framleiða alla þá orku sem Elliðaárstöð gerir á heilu ári. Stefán Jón segir að það hafi auðvitað verið rætt hvort rífa ætti bæði stífluna við Elliðavatn, og eyða þannig Elliðavatni, og lóninu við stífluna. Það hafi hins vegar ekki farið lengra því ekki hafi verið sýnt fram á starfsemin skaði lífríkið neitt sérstaklega. Hann segir aðaláhyggjuefnið vera mengun Elliðaánna, ekki lónið eða Elliðavatn, og tekur fram að það sé komin söguleg hefð fyrir þessu.
Fréttir Innlent Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira