Innlent

Elliðaárdal sökkt árlega

Hluta Elliðaárdals var sökkt undir vatn í vikunni. Þetta gerist reyndar á hverju hausti þegar virkjunin í dalnum er ræst til raforkuframleiðslu. Það er hins vegar engin umræða hjá borgaryfirvöldum um að leggja af virkjunina. Fyrir viku runnu Elliðaárnar niður að stíflunni í tveimur kvíslum og sjá mátti fagra árbakka þar sem veiðimenn standa á sumrin og renna fyrir lax. En nú er veiðitímabilinu lokið og þessir sömu árbakkar komnir á kaf undir margra metra djúpt vatnið. Þó má sjá einstaka trjáplöntur teygja sig upp úr vatnsfletinum. Búið er að fylla lónið á ný; ástæðan er virkjunin sem þarna hefur verið starfrækt í dalnum í 84 ár, og verður það áfram miðað við sjónarmið formanns samráðsnefndar um málefni Elliðaánna, Stefáns Jóns Hafstein. Hann segir hana sögulega mikilvæga auk þess sem hún sé vararaafstöð fyrir Reykjavík. Virkjunarlónin eru raunar tvö sem þjóna Elliðaárstöð því sjálft Elliðavatn meira en tvöfaldaðist þegar það var stíflað. Mikið hefur verið rætt um svæði á hálendinu sem verið er að sökkva. En ættum við kannski að líta okkur nær og spyrja: Er nauðsynlegt að hafa virkjunarlón í útivistarparadís í Reykjavík? Þess má geta að það tekur Búrfellsvirkjun aðeins hálfan dag að framleiða alla þá orku sem Elliðaárstöð gerir á heilu ári. Stefán Jón segir að það hafi auðvitað verið rætt hvort rífa ætti bæði stífluna við Elliðavatn, og eyða þannig Elliðavatni, og lóninu við stífluna. Það hafi hins vegar ekki farið lengra því ekki hafi verið sýnt fram á starfsemin skaði lífríkið neitt sérstaklega. Hann segir aðaláhyggjuefnið vera mengun Elliðaánna, ekki lónið eða Elliðavatn, og tekur fram að það sé komin söguleg hefð fyrir þessu. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×