Óvíst hvað flugmanninum gekk til 11. maí 2005 00:01
Skelfing greip um sig í Washington í Bandaríkjunum síðdegis þegar öllu starfsfólki og gestum bæði í Hvíta húsinu og í þinginu var skipað að yfirgefa húsin hið snarasta. Í ljós kom að lítil einkaflugvél hafði farið inn á flugbannssvæði miðborgarinnar. Skömmu eftir klukkan fjögur í dag var augljóst að eitthvað mikið var að gerast í Washington; fólk kom hlaupandi út úr Hvíta húsinu og þinghúsinu og öskrandi öryggisverðir skipuðu öllum að hafa sig á brott hið snarasta. Í nokkrar mínútur var ekki vitað hvað var á seyði en sögusagnir fóru á kreik um flugvél sem stefndi í átt að Hvíta húsinu og aðstæður minntu mjög á 11. september 2001. Herþota og herþyrla sáust síðan hringsóla yfir miðborginni í kringum litla Cessnu-flugvél sem var aðeins fimm kílómetra frá Hvíta húsinu. Að lokum sveigði hún af leið í burtu frá borginni og var fylgt til lendingar á nálægum flugvelli þar flugmaðurinn var leiddur á brott í járnum. Hann er nú í yfirheyrslu hjá lögreglu. Enn er ekki vitað hvað honum gekk til eða hvort hann hreinlega villtist af leið. Bannað er að fljúga yfir Washington en flugmaðurinn sinnti í engu ítrekuðum skipunum flughersins og flugumsjónarmanna um að hafa sig á brott. Bush Bandaríkjaforseti var ekki í Hvíta húsinu þegar þetta gerðist en Lára forsetafrú og Nancy Reagan, fyrrverandi forsetafrú sem var í heimsókn, voru báðar fluttar í burtu.Fjölmiðlafólki hleypt að nýju inn í Hvíta húsið eftir að það hafði verið rýmt um fjögurleytið að íslenskum tíma vegna ótta við hugsanlega hryðjuverkaárás.MYND/AP
Erlent Fréttir Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira