Tólf milljónir manna í þrælkun 11. maí 2005 00:01
Rúmar tólf milljónir manna um allan heim búa við þrælkun af einhverju tagi. Hagnaður þeirra sem versla með þræla er talinn nema tæpum tvö þúsund milljörðum króna á ári. Stærstur hluti þrælanna er enn á barnsaldri. Alþjóðavinnumálastofnunin ILO kynnti í gær skýrslu sína um vinnuþrælkun og aðgerðir gegn henni en þetta er í annað skipti á þessari öld sem ILO gefur út slíka skýrslu. Þar kemur fram að 12,3 milljónir manna hafi verið hnepptar í þrældóm um allan heim. Verst er ástandið í Asíu þar sem 9,5 milljónir manna búa við þrælkun. Í Suður- og Mið-Ameríku eru 1,3 milljónir þrælar, 660.000 í Afríku sunnan Sahara, 260.000 í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku og 210.000 í gömlu austurblokkinni. 360.000 manns eru ánauðug á Vesturlöndum. Fimmtungur allra þræla ganga kaupum og sölum og eru fluttir á milli staða. Skýrsluhöfundar telja að þeir sem stundi slík viðskipti hafi sem nemur tvö þúsund milljarða króna upp úr krafsinu, um 800.000 krónur á hvern þræl. Ekki er merkjanlegur kynjamunur í þeim störfum sem þrælarnir verða að inna af hendi. Þetta á sérstaklega við greinar á borð við landbúnað, byggingarframkvæmdir, múrsteinagerð og verksmiðjustörf. Hins vegar eru nær eingöngu konur og stúlkur þvingaðar í kynlífsánauð. Talið er að 40-50 prósent þeirra sem búa við þrælkun séu börn undir átján ára aldri. "Þrælkun sýnir verstu hliðar hnattvæðingarinnar enda er þeim sem eru hnepptir í þrældóm neitað um lágmarksmannréttindi og reisn," segir Juan Somavia, framkvæmdastjóri ILO. "Til að markmið hnattvæðingar náist verður að uppræta þrælahald." Skýrsluhöfundar segja að hægt sé að uppræta þrælahald en aðeins ef ríkisstjórnir og alþjóðastofnanir beiti markvissum aðgerðum, til dæmis með hertari löggjöf á þessu sviði.
Erlent Fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira