Norræn ESB-herdeild stofnuð 11. maí 2005 00:01
Varnarmálaráðherrar Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa ákveðið að koma á fót sameiginlegri norrænni herdeild, sem ætlað er að verða hluti af hraðliði Evrópusambandsins. Herdeildin á að verða klár í slaginn í ársbyrjun 2008, að því er greint er frá í sænska blaðinu Dagens Nyheter. Vegna undanþágu Dana frá þátttöku í varnarmálasamstarfi ESB, sem þeir sömdu um eftir að Danir höfnuðu fyrst Maastricht-sáttmálanum á sínum tíma (árið 1993), leggja Danir norrænu herdeildinni ekki til neinn liðsafla. Svíar munu leggja til þorra hermannanna, eða 1100 af 1500 mönnum, en Finnar 200 og Eistar væntanlega 50 hermenn. Norðmenn, sem ekki eru í Evrópusambandinu, leggja til 150 hermenn. Að sögn Kristinar Krohn Devold, varnarmálaráðherra Noregs, er norsk þátttaka í þessu verkefni mikilvæg fyrir norska öryggishagsmuni. "Við viljum eiga virkt samstarf við ESB. ESB á eftir að verða mikilvægur vettvangur varnarmálasamstarfs," sagði Devold eftir fund varnarmálaráðherranna í Joensuu í Finnlandi, þar sem áformin voru undirrituð á þriðjudag. Samkvæmt frétt AP-fréttastofunnar af fundinum mun Ísland ákveða síðar með hvaða hætti það leggi verkefninu lið. En samkvæmt upplýsingum sem fengust í utanríkisráðuneytinu í gær kemur Ísland ekki nálægt þessu að neinu öðru leyti en því að sitja reglulega samráðsfundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna. Það er gert í nafni svonefndrar Nordcaps-bókunar, sem Ísland varð aðili að árið 2003. Með aðild Svía, Norðmanna, Finna og Dana hófst þetta samstarf árið 1997. Eistar hafa einnig tengst því síðan fulltrúar þeirra hófu að sækja fundi norrænu ráðherranefndarinnar. Norræna herdeildin verður hluti af 14.000 manna hraðliði skipuðu vel þjálfuðum hermönnum sem á að vera hægt að senda með mjög skömmum fyrirvara á vettvang á átakasvæði til að stilla til friðar eða til friðargæsluverkefna. Þetta 14.000 manna hraðlið verður hluti 60.000 manna herliðs sem markmiðið er að Evrópusambandið geti, frá árinu 2007, ráðstafað til ýmissa verkefna í nafni sameiginlegrar öryggis- og varnarmálastefnu þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira