ESB herðir vinnulöggjöf sína 11. maí 2005 00:01
Evrópusambandið hefur ákveðið að herða vinnutímalöggjöf sína þannig að erfiðara verður að fá undanþágu frá þeirri meginreglu að fólk eigi að meðaltali ekki að vinna meira en 48 klukkustundir á viku. Vinnutímalöggjöf Evrópusambandsins kveður á um 48 stunda vinnuviku að meðaltali, eða minna; a.m.k. ellefu klukkustunda samfellda hvíld á hverjum degi og reglulegar pásur. Næturvinna er frekari takmörkunum háð og má ekki fara yfir átta klukkustundir á sólarhring og lágmarks sumarfrí er fjórar vikur. Í dag er auðvelt að fá undanþágu frá þessu og einstaklingar geta krafist þess að vinna lengur ef þörf þykir. Evrópuþingið samþykkti hins vegar í morgun að draga úr þessum undanþágum á næstu þremur árum og stefna að því að hætta þeim alveg. Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og á Spáni hafa notfært sér undanþágurnar, sérstaklega í rekstri heilbrigðiskerfisins, til að komast hjá því að reikna bakvaktir lækna sem vinnutíma inn í þessa hefðbundnu 48 stunda vinnuviku. Þessar ríkisstjórnir óttast nú að öngþveiti og læknaskortur skapist á sjúkrahúsum. Það er aðallega breska ríkisstjórnin sem er algerlega á móti því að herða þessi lög enn frekar og fullyrðir að þessar breytingar muni draga úr samkeppnishæfni fyrirtækja. Búist er við því að Bretar muni reyna allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir þessa breytingu og muni leita fulltingis nýrra ESB-landa frá Austur-Evrópu sem einnig eru óhress með þetta fyrirkomulag.
Erlent Fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira