Sjálfráða og með kosningarétt 27. ágúst 2004 00:01
Útvarpsstöðin Bylgjan FM 98,9 fagnar 18 ára afmæli í dag. Bylgjan var fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi og hóf útsendingar 28. ágúst 1986. Bylgjan fagnar því 18 ára afmæli í dag og einnig því að vera stærsta útvarpsstöð landsins en í könnun Gallup í júní mældist Bylgjan í fyrsta sinn með meiri hlustun en Rás 2. "Þetta eru sannarlega tímamót og mikið fagnaðarefni. Við höfum lengi verið á toppnum hjá okkar markhópi, karla og kvenna á aldrinum 25 til 49 ára. Nú hins vegar mælumst við vinsælasta útvarpsstöð landsins meðal Íslendinga á aldrinum 12 til 80 ára," segir Bjarni Arason dagskrárstjóri Bylgjunnar. Útvarpssvið Íslenska útvarpsfélagsins rekur nú Bylgjuna. Margt gott fólk hefur stýrt Bylgjunni í gegnum tíðina og skemmt landanum með tónlist, spjalli og traustum fréttum í 18 ár. Þegar stöðin fór í loftið 18. ágúst 1986 var Einar Sigurðsson útvarpsstjóri og Páll Þorsteinsson dagskrárstjóri. Bjarni Arason núverandi dagskrárstjóri segir starfsfólk Bylgjunnar hlakka til að njóta afmælisdagsins með hlustendum sínum. "Það má segja að stöðin sé nú orðin sjálfráða og komin með kosningarétt. Auðvitað bjóðum við hlustendum upp á afmælisköku í tilefni dagsins. Við verðum með beina útsendingu frá Iceland Spa & Fitness í Dalsmára í Kópavogi sem áður hét Sporthúsið en nú er verið að sameina rekstur líkamsræktarstöðvarnar Baðhúsið, Sporthúsið og Þrekhúsið undir einu félagi, Iceland Spa & Fitness. Við hefjum útsendingu frá Sporthúsinu klukkan 11 en kakan sem Kornið hefur bakað í tilefni dagsins verður skorin klukkan 12. Við höfum líka látið klippa til lag í tilefni dagsins, Átján rauðar rósir sem Vormenn Íslands sungu svo eftirminnilega um árið. Inn í það hefur verið blandað gullkornum frá fjölmörgum sem komið hafa við sögu á Bylgjunni frá upphafi. Svo auðvitað rifjum við upp nokkra af þeim smellum sem hafa verið vinsælir í gegnum tíðina," segir Bjarni Arason dagskrárstjóri Bylgjunnar.
Innlent Menning Mest lesið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Menning Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira