Toppliðin unnu öll 26. desember 2004 00:01
Lið Chelsea virðist einfaldlega ekki fært um að tapa leik þessa dagana og í gær var það lið Aston Villa sem var fórnarlambið. Chelsea hefur þó oft leikið betur en í gær en með varnarleik og boðið var upp á í gær er andstæðingurinn ekki líklegur til að skora mörk. Enn einu sinni hélt Chelsea hreinu og eftir 19 leiki á tímabilinu hefur liðið aðeins fengið á sig 8 mörk. "Ef lið ætla sér velgengni verða þau að hafa góða vörn og markmann. Það hefur Chelsea. Liðið er magnað, spilar frábært kerfi og ég öfunda Mourinho fyrir að fá að njóta krafta leikmanna eins og Damien Duff og Arjen Robben," sagði David O´Leary, stjóri Villa eftir leikinn, fullur lotningar í garð Mourinho. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea og fékk ágætis dóma fyrir sína frammistöðu. Hann náði reyndar að brenna af upplögðu marktækifæri áður en hann var tekinn út af þegar rúmar 20 mínútur voru eftir. Leikmenn Arsenal sýndu það í leiknum gegn Fulham að þeir eru ekki á þeim buxunum að gefa eftir í baráttunni við Chelsea og var 2-0 sigur liðsins gegn Fulham afar sannfærandi. Thierry Henry og Robert Pires voru frábærir í leiknum og skoruðu þeir mörk Arsenal, bæði á afar snyrtilegan hátt. Markið var það 128. sem Henry skorar fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og jafnaði hann þar með gamalt met Ians Wright hjá félaginu. Er Henry nú langmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 16 mörk en næstur kemur Pires með tíu talsins. "Það sem er ótrúlegast við markaskor Henry hjá okkur er hversu stöðugur hann er. Nefnið mér einn annan framherja sem hefur aldrei látið meira en einn eða tvo mánuði líða á milli marka," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eftir leikinn. Everton og Manchester United eru enn með í baráttunni eftir góða sigra í gær. Lærisveinar Alex Ferguson áttu í engum vandræðum með Bolton á heimavelli sínum á meðan Marcus Bent tryggði Everton dýrmæt þrjú stig með sigurmarki tæpum hálftíma fyrir leikslok gegn Manchester City.
Enski boltinn Mest lesið Kærustupar á leið á Ólympíuleika þar sem þau fá ekki að vera saman Sport Hélt uppi meira en aldar gamalli hefð Enski boltinn Slot gagnrýnir Newcastle: „Þetta var ekki fótboltaleikur“ Enski boltinn Sjáðu sigurmark Rios og öll hin frá St. James' Park Enski boltinn Borga fjörutíu milljónir punda fyrir kantmann sem skoraði tvö mörk í fyrra Enski boltinn Taplausir síðan Caulker kom inn í liðið Íslenski boltinn Gagnrýndu Bruno: „Hann átti skelfilegan leik“ Enski boltinn Segir að Dowman sé eins og Messi Enski boltinn Höfnuðu fimmtíu milljóna punda tilboði í Strand Larsen Enski boltinn Tugir hjóla frá Siglufirði til Dalvíkur í nýrri fjallahjólakeppni Sport Fleiri fréttir Bróðir Alcaraz rakaði óvart af honum hárið Heimir skildi fyrirliðann eftir heima Reynsluboltar snúa aftur og keyra Cadillac á næsta ári Palace gerir hosur sínar grænar fyrir Akanji Hálffimmtug Venus með eftirminnilega endurkomu Tugir hjóla frá Siglufirði til Dalvíkur í nýrri fjallahjólakeppni Taplausir síðan Caulker kom inn í liðið Borga fjörutíu milljónir punda fyrir kantmann sem skoraði tvö mörk í fyrra „Hefur ekki gengið mjög vel þangað til í síðustu viku“ Höfnuðu fimmtíu milljóna punda tilboði í Strand Larsen Slot gagnrýnir Newcastle: „Þetta var ekki fótboltaleikur“ Fall reyndist fararheill hjá Eyjakonum Sjáðu Örvarnar hitta í mark á Meistaravöllum Segir að Dowman sé eins og Messi Gagnrýndu Bruno: „Hann átti skelfilegan leik“ Sjáðu sigurmark Rios og öll hin frá St. James' Park Kærustupar á leið á Ólympíuleika þar sem þau fá ekki að vera saman Hélt uppi meira en aldar gamalli hefð Dagskráin: Bikarmeistarar, Stúkan og VARsjáin á sama kvöldinu Fyrsta félagið með tvö fórnarlömb skotárása í liðinu Græddu meira en milljarð á kokteilum á US Open Sjáðu gullstrákana í Vestra fagna: „Vorum bara miklu stærra lið“ Van Dijk um Rio: Draumabyrjun en hann verður að vera auðmjúkur Rio setti nýtt Liverpool met Óskar Hrafn: Stundum hata ég fótbolta Jökull: Förum ekki hærra með svona frammistöðu Inter byrjar tímabilið á stórsigri Örvar: Tökum þessa þrjá punkta og förum brosandi heim Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Uppgjör: KR-Stjarnan 1-2 | Örvar kom Stjörnunni inn í titilbaráttuna Sjá meira