Rekaldið hefur ekkert hreyfst 3. ágúst 2004 00:01
Lögregla er engu nær um það hvert líkið af Sri Ramawati hefur rekið eftir að Hákon Eydal varpaði því fyrir björg. Rekald, sem sett var út í gær til að kanna rekið, hefur ekkert hreyfst. Þegar björgunarsveitarmenn settu rekaldið út í gær fóru þeir eftir nákvæmum leiðbeiningum sem Hákon Eydal hefur gefið lögreglunni um hvar og hvernig hann losaði sig við líkið af fyrrverandi sambýliskonu sinni, Sri Rahmawati. Í sænskan póstpoka settu þeir leðurjakka og fleiri föt sem Hákon segir að Sri hafi verið í, ásamt grjóti og kúbeini, sem Hákon notaði þegar hann varð Sri að bana. Sjávarföll og aðstæður í gær voru eins og þegar Hákon sagðist hafa kastað líkinu fyrir björgin. Skömmu síðar flæddi yfir pokann, en hann hefur ekki hreyfst úr stað síðan, og er enn á sama stað í Hofsvík, með áfastri bauju svo hægt sé að fylgjast með honum. Ólíklegt verður að teljast að líkið af Sri hafi legið lengi í fjörunni. Spurningin er þá hvort þessi tilraun með rekaldið hafi mistekist, eða hvort Hákon hafi ekki sagt satt þegar hann lýsti því hvernig hann losaði sig við líkið. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að lögreglan muni gefa tilrauninni meiri tíma áður en ályktanir verða dregnar. Björgunarsveitarmenn muni fylgjast með rekaldinu áfram, enn um sinn. Fram hefur komið að faðir Hákons kom í íbúð hans kvöldið sem Sri var myrt. Ómar Smári segir að lögreglu gruni ekki föður hans um aðild að málinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Fleiri fréttir Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Sjá meira