Jákvætt í garð lækna og lögreglu 3. ágúst 2004 00:01
Yfir 80 prósent þjóðarinnar eru jákvæð í garð lækna, lögreglu og kennara. Þingmennska virðist þó ekki vera til vinsælda fallin, því innan við þriðjungur þjóðarinnar er jákvæður gagnvart alþingismönnum. Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup þar sem fólk var spurt hvort það væri jákvætt eða neikvætt í garð nokkurra starfstétta. Flestir eru jákvæðir gagnvart læknum eða um 85 prósent aðspurðra. Nokkur munur er þó eftir tekjum fólks, en þeir sem eru með 550 þúsund krónur eða hærri mánaðarlegar fjölskyldutekjur er jákvæðara gagnvart læknum en fólk með lægri tekjur. Um 81 prósent er jákvætt gagnvart kennurum. Konur eru þó mun jákvæðari en karlar, eða um 85 prósent kvenna á móti um 77 prósentum karla. Eins er munur á viðhorfi til kennara eftir menntun fólks. 67 prósent þeirra sem hafa lokið grunnskólaprófi eru jákvæðir á móti 88 prósentum háskólamenntaðra. Lögreglan er líka vinsæl en 81 prósent aðspurðra eru jákvæðir í hennar garð. Því eldra sem fólk er, því jákvæðara er það og aftur líta konurnar starfsstéttina jákvæðari augum. Þá fellur prestastéttin í kramið, en 79 prósent eru ánægð með þá starfstétt. Konur og eldra fólk er ánægðast með prestana. Jákvæðnin fer dvínandi þegar fólk er spurt um viðhorf þess til fjölmiðlafólks. 62 prósent þjóðarinnar lýsa yfir jákvæðu viðhorfi. Ef viðhorf til stéttarinnar er skoðað eftir því hvað fólk segist ætla að kjósa, kemur í ljós að kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru síður jákvæðir í garð fjölmiðlafólks en kjósendur annarra flokka. Lögfræðingarnir skora enn lægra á viðhorfsskalanum, en 52 prósent eru jákvæðir gagnvart þeim. Enn sem fyrr er munur á viðhorfum kynjanna, þar sem konurnar eru jákvæðari. Þá eru mun fleiri stuðningsmenn stjórnarflokka en stjórnarandstöðu jákvæðir. Fæstir eru þó jákvæðir gagnvart alþingismönnum, af þeim starfsstéttum sem spurt var um. Athyglivert í ljósi þess að þetta er sama fólkið og kýs þá til starfa, og þess að á þing komast mun færri en vilja. Um 30 prósent þjóðarinnar eru jákvæð en um 42 prósent neikvæð gagnvart þingmönnum. Ekki er marktækur munur eftir bakgrunni fólks en lítilsháttar munur er á viðhorfi eftir aldri í þá veru að eldra fólk er jákvæðara.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira