Fyrsta sjóferðin í 16 ár 27. júní 2004 00:01
Vestfirðingar minntust sögu sinnar um helgina. Gamlir Sléttuhreppingar og afkomendur þeirra gerðu gott betur en að fylla hina hundrað ára gömlu Staðarkirkju í Aðalvík á Ströndum og elsti varðveitti vélbátur landsins, Gestur frá Vigur sem er aldargamall, fór í sína fyrstu sjóferð í sextán ár. Hundrað ár eru um þessar mundir frá því að vélvæðing íslenska fiskiflotans hófst á Ísafirði en hún markaði í raun upphafið að nútímavæðingu á Íslandi. Í tilefni af tímamótunum var ráðist í að gera upp vélbátinn Gest frá Vigur sem þjónaði eigendum sínum vel í áttatíu ár. Þeir sem veg og vanda höfðu af endurgerðinni og allra áhugasömustu stuðningsmennirnir fóru í vígsluferðina á laugardag þegar haldið var heim í Vigur. Jón Sigurpálsson, safnvörður Byggðasafns Vestfjarða, segir þetta elsta varveitta sérsmíðaða vélbátinn á Íslandi. Hann hafi verið smíðaður fyrir séra Sigurðs Stefánsson í Vigur og hafi þjónað þar við fiskveiðar og aðflutning. Fimmtíu ár eru frá því að Sléttuhreppur lagðist í eyði en þar er lífleg byggð á sumrin. Mikill metnaður hefur verið lagður í að halda við kirkjunni á Sæbóli í Aðalvík og héldu átthagafélög Sléttuhrepps upp á aldar afmæli hennar með messu um helgina. Um klukkustundarganga er frá byggð að kirkju og þykir nútíma Íslendingum það nokkuð langt. Magnús Erlingsson, sóknarprestur á Ísafirði, segir að þetta var kirkja sem þjónaði stóru svæði og hafi menn komið ofan af heiði. Þá hafi kirkjunni líklega verið valinn staður þar sem gott var fyrir prestinn og fjölskyldu hans að búa. Að venju þegar hátíðahöld eru í Aðalvíkinni var dansað fram á nótt í skólahúsinu á Sæbóli.
Fréttir Innlent Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Fleiri fréttir Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Sjá meira