Fá 50 milljónir á mánuði 26. desember 2004 00:01
Frank Lampard, Patrick Vieira og Sol Campbell eru launahæstu leikmennirnir í ensku knattspyrnunni í dag og þiggja allir 11,6 milljónir íslenskra króna á viku eða rétt um 50 milljónir á mánuði. Þremenningarnir hafa nokkra yfirburði á toppi listans því næstur inn er Roy Keane, fyrirliði Manchester United, með "aðeins" tæpar 10 milljónir króna. Athygli vekur að efstu sjö sæti listans skipa aðeins leikmenn frá Arsenal, Chelsea og Manchester United, og undirstrikar sú staðreynd hversu mikla fjárhagslega yfirburði þessi þrjú lið hafa yfir önnur í Englandi. Steven Gerrad, fyrirliði Liverpool, sem ákvað í sumar að halda kyrru fyrir á Anfield og hafnaði gylliboðum frá bæði Chelsea og Real Madrid sem hefðu án efa gert hann að einum launahæsta knattspyrnumanni heims, þiggur sínar vikulegu 6,6 milljónir króna og virðist una vel við sitt. Hinn magnaði Thierry Henry, sem flestir eru sammála um að sé mikilvægasti leikmaður Arsenal, verður að sætta sig við lægri laun en Vieira og Campbell og fær um 9,4 milljónir á viku. Og þótt ótrúlegt megi virðast nær ólátabelgurinn Kieron Dyer 8. sæti listans með heilar 7,3 milljónir á viku og skiptir þá litlu að Dyer hefur síður en svo átt fast sæti í liði Newcastle það sem af er leiktíðinni. Arjen Robben, sem Chelsea keypti á tæpa 1,4 milljarða í sumar, fær tæpar 6 milljónir á viku og er í sama launaflokki hjá Chelsea og Eiður Smári Guðjohnsen. Af liðunum í London er það Tottenham sem borgar sínum leikmönnum lægstu launin. Jermain Defoe, sem ásamt Wayne Rooney er talinn efnilegasti framherji Englands, fær ekki nema 2,1 milljón á viku, það sama og markvörðurinn Paul Robinson, og eru þeir meðal þeirra launahæstu á White Hart Lane. Þess má geta að Joe Cole fær helmingi meira fyrir að sitja upp í stúku helgi eftir helgi hjá Chelsea. Middlesbrough hefur verið duglegt að lokka til sín frambærilega leikmenn sem komnir eru á aldur og er þeim borgað eftir því; Jimmy Floyd Hasselbaink, Mark Viduka og Gareth Southgate fá allir 4,7 milljónir á viku.
Enski boltinn Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Sjá meira