Sport

Rúmar 400 milljónir frá borginni

Reykjavíkur veitir lægsta styrki til íþróttafélaga á hvern íbúa ef marka má samanburð á styrkjum sveitarfélaga til þessa málaflokks sem Íþróttabandaleg Reykjavíkur lét gera. Hún er byggð á gögnum frá árinu 2002. Húsaleigustyrkir til íþróttafélaga eru hæstir á Akranesi, rúmar 11.000 krónur á hvern íbúa en lægstir í Reykjavík þar sem þeir nema tæpum 4.000 krónum. Alls nemur húsaleigustyrkurinn rúmum 400 milljónum króna í borginni. Öll sveitarfélögin sjö sem tóku þátt í könnuninni veittu íþróttafélögum rekstrarstyrki. Þeir reyndust lægstir í Reykjavík miðað við íbúafjölda en hæstir í Garðabæ. Munurinn milli sveitarfélaganna er rúmar 2.000 krónur á hvern íbúa. Samantektin leiðir í ljós að flest íþróttafélög voru starfrækt í Reykjavík, 54 en fæst í Garðabæ eða fimm. Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, segir að styrkir til íþróttafélaga séu greiddir með mismunandi hætti. Í Reykjavík sé til dæmis ekkert sem heitir styrkir til íþróttastarfsins annað en ferðastyrkir og húsaleigustyrkir. Í nágrannasveitarfélögunum séu greiddir rekstrarstyrkir, til dæmis fyrir þjálfun barna. Að öðru leyti komi Reykjavík vel út úr samanburðinum auk þess sem borgin hafi byrjuð að styrkja íþróttafulltrúa hjá hverfisíþróttafélögunum í Reykjavík fjárhagslega eftir að samanburðurinn var gerður. Flest íþróttafélög voru starfandi í Reykjavík, 54 en fæst í Garðabæ eða fimm. Fjöldi iðkenda er frá rúmlega 1.500 á Akranesi til tæplega 34.000 í Reykjavík. Hlutfall af íbúafjölda er hæst í Garðabæ þar sem rúmlega 45 prósent íbúa eru skráð iðkendur í íþróttafélög. Næstir koma Akureyringar þar sem tæplega 39 prósent íbúa eru skráðir í íþróttafélag. Lægsta hlutfallið er í Kópavogi þar sem 27,4 prósent íbúa eru skráðir iðkendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×