Vala og Örn fengið mest 10. desember 2004 00:01
Þrjátíu og þrír íþróttamenn hafa fengið styrki úr Afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á undanförnum fimm árum. Sex einstaklingar hafa fengið meira en fimm milljónir í styrki á þessum fimm árum en þar bera þrír einstaklingar, stangarstökkvarinn Vala Flosadóttir, sundmaðurinn Örn Arnarson og tugþrautarkappinn Jón Arnar Magnússon höfuð og herðar yfir aðra íþróttamenn. Vala, Örn og Jón Arnar voru á A-styrk á þessu ári sem er að líða en það gaf þeim 120 þúsund krónur á mánuði í aðra hönd. Auk þeirra voru fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson, stangarstökkskonan Þórey Edda Elísdóttir og júdókappinn Bjarni Skúlason á A-styrk. Vala Flosadóttir var ein besta stangarstökkskona heims árið 1999 og sýndi það enn frekar árið 2000 þegar hún vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Sydney. Síðan þá hefur hvorki gengið né rekið hjá Völu. Hún hefur verið mikið meidd og varla verið skugginn af sínu besta sjálfi. Þrátt fyrir það hefur þegið hæsta styrkinn undanfarin þrjú ár og spurning hvort hún nýtur enn vilvildar Afrekssjóðs þegar kemur að því að útdeila styrk fyrir næsta ár. Sama gildir um Örn Arnarson, sem hefur verið á hæsta styrk undanfarin ár. Örn stóð sig frábærlega á Ólympíuleikunum í Sydney og stefndi síðan á verðlaunasæti í Aþenu. Heldur hallaði undan fæti hjá honum á þessu ári og þegar kom að stóru stundinni þá var hann ekki í nægilega góðu formi til að synda sín bestu sund. Örn þarf að sanna sig upp á nýtt en mun væntanlega verða áfram á fullum styrk enda sá sundmaður sem á mesta möguleika á því að vera í fremstu röð ef skrokkur og haus eru í lagi. Jón Arnar Magnússon hefur í hyggju að hætta sem afreksmaður en ferill hans hefur verið meiðslum stráðum. Hann hefur á góðum degi verið einn sá besti í heiminum en allt of oft hefur hann ekkki náð að klára þrautir á stórmótum. Það má eiginlega segja að tveir íþróttamenn, Rúnar Alexandersson og Þórey Edda Elísdóttir, sem fengu A-styrk hafi staðið undir væntingum. Þórey Edda tvíbætti Íslands- og Norðurlandametið í stangarstökki og hafnaði í fimmta sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu og Rúnar hafnaði í sjöunda sæti á bogahesti á Ólympíuleikunum. Þau fengu bæði viðbótarstyrk út árið og eru örugg með A-styrk á næsta ári. Júdókappinn Bjarni Skúlason náði ekki að fylgja eftir góðu ári í fyrra þegar hann hafnaði í níunda sæti á HM. Bjarna gekk illa á A-mótum sem gefa stig fyrir Ólympíuleika og komst ekki til Aþenu. Ekki er líklegt að þeir íþróttamenn sem voru á B-styrk í ár, kringlukastarinn Magnús Aron Hallgrímsson, sundmaðurinn Jakob Jóhann Sveinsson og taekwondokappinn Björn Þorleifsson, eigi möguleika á því að hækka upp í A-flokk frekar en aðrir íþróttamenn sem voru á styrk á síðasta ári.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Handbolti Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Orri áfram heitur á Spáni Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Skoruðu eftir 15 sekúndur og Þórir fékk engu breytt Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Sjá meira