Það mætir enginn 27. nóvember 2004 00:01
Íslandsmeistarar Hauka í handknattleik munu ekki leika á heimavelli gegn króatíska liðinu Medvescak Infosistem Zagreb í Evrópukeppni bikarhafa. Þess í stað hafa þeir selt Króötunum heimaleikinn og munu liðin því mætast ytra 4. og 5. desember næstkomandi. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun Hauka er sú að mætingin á leiki félagsins hefur alls ekki verið nógu góð. "Við höfum orðið fyrir miklum vonbrigðum með mætinguna. Það er ekki hægt að neita því," sagði Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka. "Þetta er eini alvöru handboltinn sem boðið er upp á hér í vetur þar sem það eru engir landsleikir og því er alveg skelfilegt að fá engan í húsið." Þorgeir vildi að það kæmi skýrt fram að Haukar hefðu ekki farið þessa leið hefðu þeir átt seinni leikinn heima en fyrir lá að þrír leikmanna liðsins gætu ekki spilað útileikinn þar sem þeir eru að þreyta próf í háskólanum á sama tíma.Með því að spila báða leikina úti sömu helgi geta allir leikmenn spilað. Engu að síður liggja einnig fjárhagslegar ástæður að baki þessari ákvörðun enda spara Haukarnir sér töluvert fé með því að selja Króötunum heimaleikinn. "Við komum alltaf til með að tapa peningum á þessari þáttöku en með því að selja leikinn minnkum við tapið um eina milljón, sem er talsvert. Það hefur ýmislegt breyst og til að mynda hefur dómarakostnaður hækkað um helming frá því í fyrra. Að sama skapi hafa greiðslur fyrir þátttöku lækkað," sagði Þorgeir en það kostar ekkert lítið að flytja misgóða dómara til landsins. "Meðalkostnaður við að fá dómara hingað er í kringum 350-400 þúsund krónur, sem er svakalega mikið. Innkoman af þeim leikjum sem við höfum spilað hingað til dugar ekki einu sinni fyrir dómarakostnaði í þeim leikjum." Þessi ákvörðun var tekin í fullu samráði við þjálfara liðsins, Pál Ólafsson, sem hefur ekkert út á hana að setja. "Við erum búnir að gefast upp. Það mætir bara enginn á þessa leiki, eins sorgleg staðreynd og það er," sagði Páll frekar svekktur en það segir sig sjálft að það rýrir verulega möguleika Hauka á að komast áfram að spila báða leikina úti.
Íþróttir Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Golf Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Sjá meira