Sport

Þurfum að hugsa um okkur sjálfar

 Landsliðsárið byrjaði einnig í Egilshöllinni þegar 5-1 sigur vannst á Skotum í afdrifaríkum æfingalandsleik en fyrirliðinn og landsleikjamethafinn Ásthildur Helgadóttir sleit krossbönd í leiknum og hefur ekkert spilað síðan. Íslensku stelpurnar unnu síðan 5-0 sigur á Ungverjum í Ungverjalandi í undankeppninni í lok maí og tryggðu sér sæti í umspilinu þótt enn væru tveir leikir eftir, heimaleiki gegn Frökkum og Rússum. Íslensku stelpurnar náðu hinsvegar ekki að tryggja sér annað sætið því þær töpuðu báðum þessum leikjum og fá því afar sterka mótherja í umspilinu því Noregur hefur verið með eitt sterkasta knattspyrnulandslið heims undanfarin áratug. Helena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari lítur bjartsýnum en raunsæum augum á verkefnið. "Þetta er frábært lið sem er búið að vera í fremstu röð til margra ára og þetta eru því engin aukvissar sem við fáum í heimsókn. Það er samt alltaf hægt að finna einhverja veikleika hjá liðum og við erum búin að vera að kíkja á spólur með þeim og reynum að nýta okkur það sem við teljum vera veikleika þeirra. Fyrst og fremst þurfum við samt að ná upp sjálfstrausti í okkar lið og stelpurnar þurfa að þora að framkvæma hluti á móti svona liði. Við þurfum því aðallega að hugsa um okkur sjálfar og hvernig við mætum í þennan leik," sagði Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu. "Það er pottþétt að áhorfendur gætu orðið okkar tólfti maður og ég vona fólk vilji koma og sjá svona toppleik því það er mjög gaman fyrir okkur að fá svona sterkt lið eins Noreg hingað til lands. Við vorum líklega með spennustigið of hátt í þessum haustleikjum gegn Frökkum og Rússum, í þessum leikjum sem skiptu máli. Síðan fórum við til Bandaríkjanna og mér fannst sú ferð nýtast okkur vel og nú tek ég mikilvægt fyrir okkur að byggja ofan á það dæmi og vona að stelpurnar séu klárar í þetta verkefni. Það er bara þessir leikir og stelpurnar gera sér alveg grein fyrir því. Við breytum engu í okkar leikstíl, spilum varnarsinnað og höldum okkar striki. Við erum að vinna og þróa leik liðsins. Við erum búin að spila fullt af leikjum á þessu ári sem er mjög gott og því hefur undirbúningur okkar verið góður. Þær sitja eftir riðlinum á eins litlum mun og hægt er og í rauninni fannst mér þær alveg geta komist áfram eins og Danir. Þetta er klassalið og voru óheppnar að vinna ekki sinn riðil og sleppa við þessa leiki. Þær eiga margar mjög frambærilegar fótboltakonur og þótt að liðið sé að fara í gegnum ákveðna endurnýjun þá er leikreyndasti leikmaður liðsins komin með 134 leiki en efst hjá okkur er að skríða í 50 leiki. Það er ekkert ómögulegt í fótbolta, við erum að spila tvo leiki í röð á stuttum tíma. Heimavöllurinn verður að nýtast okkur betur en hann hefur gert undanfarið og fari svo að við náum hér fínum úrslitum þá er allt opið. Þetta er spurning um að halda einbeitingu í 90 mínútur og jafnvel 95 mínútur og það ræður öllu," sagði Helena að lokum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×