Eyjamenn unnu í sjö marka leik 22. ágúst 2004 00:01
Eyjamenn sigruðu Keflvíkinga 2-5 í Reykjanesbæ í gær og gefa ekkert í toppbaráttu Landsbankadeildar karla. Eyjamenn eru eftir leikinn í þriðja sæti, þremur stigum á eftir toppliði FH-inga. Sigurinn var sanngjarn og gestirnir úr Eyjum yfirspiluðu mótherja sína lungann úr leiknum. Það var Ian Jeffs sem kom Eyjamönnum á bragðið strax á 9. mínútu eftir góðan undirbúning Gunnars Heiðars Þorvaldssonar. Keflvíkingar sóttu nokkuð eftir markið og voru í tvígang nálægt því að jafna leikinn. Fyrst þegar Stefán Gíslason skallaði að marki eftir eina af fjölmörgu hornspyrnum Scott Ramsay, en Birkir Kristinsson varði glæsilega á marklínunni. Ingvi Rafn átti síðan skot eftir aðra hornspyrnu en Ian Jeffs hreinsaði á marklínu. Gunnar Heiðar skoraði annað mark Eyjamanna á 31. mínútu eftir góða sendingu Andra Ólafssonar. Keflvíkingar byrjuðu síðari hálfleik af krafti og strax eftir sjö mínútna leik minnkaði Hörður Sveinsson muninn með stórglæsilegu marki. Hann hamraði boltann viðstöðulaust upp í hægra markhornið, óverjandi fyrir Birki. Einar Þór Daníelsson sá þó um að slökkva vonarneysta Keflvíkinga þegar hann kom Eyjamönnum í 1-3 og eftir það yfirspiluðu gestirnir baráttulausa Keflvíkinga. Ian Jeffs bætti við öðru marki sínu í leiknum og kom ÍBV í 1-4, Guðmundur Steinarsson minnkaði muninn beint úr hornspyrnu en Bjarnólfur Lárusson skoraði síðan sjöunda og síðasta mark leiksins beint úr aukaspyrnu á lokamínútunni. Spilum góðan sóknarbolta „Þetta var frábær sigur. Við komust í 2-0 og vorum í góðum gír en síðan hleyptum við þeim aðeins inn í leikinn með 1-2 og þeir voru mjög grimmir í upphafi síðari hálfleiks. En þegar við gerðum þriðja markið þá var þetta ekki spurning, þá var leikurinn búinn“, sagði Einar Þór Daníelsson, leikmaður ÍBV. „Við erum að spila góðan sóknarbolta eins og við sýndum í dag og búnir að skora flest mörkin í deildinni. Það er engin tilviljun að við erum enn með í toppbaráttunni og mér líst vel á framhaldið, þetta verður barátta fram í síðasta leik.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Körfubolti Getur varla gengið lengur Sport Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Körfubolti Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Körfubolti Segir Messi ákaflega ósáttan með leikbannið Fótbolti Snúa aftur eftir 233 daga framkvæmdir: „Þetta er gamechanger“ Íslenski boltinn Spilaði með KV í gær en má spila með KR í dag Íslenski boltinn Ísland eitt af regnbogaliðunum á Evrópumótinu Fótbolti Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Enski boltinn Barcelona biður UEFA um leyfi Fótbolti Fleiri fréttir C-deildar lið Wycombe stóð í Tottenham Wrexham reynir við Eriksen Spilaði með KV í gær en má spila með KR í dag Reisa varanlegan minnisvarða um Jota úr endurunnu efni Jón Daði meiddur og endurkoman bíður Snúa aftur eftir 233 daga framkvæmdir: „Þetta er gamechanger“ Ísland eitt af regnbogaliðunum á Evrópumótinu Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Segir Messi ákaflega ósáttan með leikbannið Getur varla gengið lengur Dagskráin: Fyrsti leikurinn á nýja KR-vellinum, ensk félög í beinni og formúla Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Mættur aftur tuttugu árum seinna Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ „Ótrúlegt að við skyldum ekki klára leikinn fyrr“ Barcelona biður UEFA um leyfi Uppgjör: FH - Fram 3-1 | FH-konur upp i annað sætið Keflvíkingar klúðruðu víti á nítugustu mínútu Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Ísak aftur með frábæra innkomu Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Messi dæmdur eftir allt saman í bann fyrir skrópið Gyökeres í flugvél á leið til London Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Anton Sveinn og Laufey Rún stálu senunni í Nauthólsvík „Hef mikla trú að það muni ganga upp núna“ Sjá meira
Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn