Stórhátið á Laugardalsvelli 13. október 2005 14:32
Það verður stórhátíð á Laugardalsvelli í kvöld þegar íslenska knattspyrnulandsliðið tekur á móti því ítalska klukkan 19.15 og er þetta án efa stærsti vináttulandsleikur sem fram hefur farið á Íslandi hingað til. Knattspyrnusamband Íslands hefur verið með markvissa herferð í gangi í þeim tilgangi að slá 36 ára gamalt aðsóknarmet á Laugardalsvellinum en til þess að það takist þurfa að koma fleiri en 18.200 áhorfendur á leikinn. Fyrir utan leikinn sjálfan verður heljarinnar dagskrá í boði fyrr um daginn og þar ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fréttablaðið sló á þráðinn til Ásgeirs Sigurvinssonar, annars af þjálfurum íslenska landsliðsins, og spurði hann út í leikinn. "Þetta lítur allt vel út og þeir leikmenn sem hafa átt að stríða við smávægileg meiðsli, eins og Arnar Grétarsson og Arnar Þór Viðarsson, eru búnir að ná sér og það virðist sem allir leikmenn verði klárir í slaginn." Aðspurður segir Ásgeir að góð stemmning ríki í hópnum og almennt hlakki mönnum til þessa stóra verkefnis: "Ég er að vona að þetta verði einfaldlega söguleg stund, bæði hvað varðar áhorfendafjöldann og leikinn sjálfan en það er ekki á hverjum degi sem íslenska landsliðið mætir svo stórri og sterkri knattspyrnuþjóð. Mér finnst alveg frábært hvað KSÍ hefur gert mikið úr þessum leik og það er alveg full ástæða til þess. Við finnum vel fyrir stemmningunni úti í þjóðfélaginu sem verið hefur að myndast frá að stefnan var sett á að slá aðsóknarmetið og ætlum að gera allt sem við getum til að vera landi og þjóð til sóma. Það er spenna í leikmönnum en fæstir af þeim hafa upplifað það að spila fyrir fleiri en 7 þúsund manns á Laugardalsvellinum. Hér áður fyrr var ekki óalgengt að landsliðið spilaði fyrir 14-15 þúsund manns og þá myndaðist oft geysileg stemmning. Þessi leikur nú verður því ný upplifun fyrir marga leikmenn okkar og ég vona innilega að það náist að slá aðsóknarmetið." Aðspurður um leikinn sjálfan sagðist Ásgeir búast við því að Ítalir myndu pressa stíft frá byrjun: "Marcello Lippi er þekktur fyrir að vilja láta pressa manninn með boltann afar stíft og það hefur alltaf þótt erfitt að leika gegn liðum undir hans stjórn. Við verðum að taka fast á þeim en um leið vera mjög þolinmóðir og snöggir að sækja þegar færi gefst. Við ætlum að sýna þennan rétta karakter sem einkennt hefur íslenska landsliðið í gegnum árin - að menn séu tilbúnir að berjast í 90 mínútur og gefa sig allan í þetta," sagði Ásgeir og bætti við: "Það verður virkilega gaman að takast á við þetta verkefni því þetta ítalska lið sem kemur hingað er samansafn af toppfótboltamönnum og við vitum alveg að þeir verða á fullu. Þeir þurfa að sýna sig og sanna fyrir nýjum landsliðsþjálfara og það er engin hætta á að Ítalarnir mæti í leikinn með hálfum hug."
Íslenski boltinn Mest lesið Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Íslenski boltinn „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Golf Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Fótbolti „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum Fótbolti Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Körfubolti Fleiri fréttir Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Varnarjaxl og varamaður tryggðu sínum þjóðum nauma sigra í nótt Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM Dagskráin í dag: Sigdís þarf sigur „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Sjá meira