Innlent

Sæludagar í Vatnaskógi

Hátíðarhöld á Sæludögum í Vatnaskógi ganga vel að sögn mótshaldara. Reiknað er með að um 700-800 gestir hafi komið á svæðið frá föstudegi. Í gærkvöldi sóttu milli 300-400 manns kvöldvöku og svo tónleika þeirra systkina Kristjáns Kristjánssonar (KK) og Ellenar Kristjánsdóttur. Veðrið hefur hefur að sögn verið ágætt, núna er hægur vindur og af og til koma smá skúrir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×