Blóð fannst í bíl hins handtekna 7. júlí 2004 00:01
Fjörtíu og fimm ára gamall maður var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í tengslum við hvarf á fyrrverandi sambýliskonu hans og barnsmóður. Lögreglan hefur rökstuddan grun um að maðurinn tengist hvarfi konunnar sem er þriggja barna móðir. Maðurinn hefur neitað við yfirheyrslur að eiga nokkurn hlut í hvarfi konunnar, en grunur leikur á því að hann hafi banað henni. Lögreglan vinnur enn að vettvangsrannsókn á heimili mannsins og nágrenni þess. Grænn Nissan Patrol jeppi í eigu mannsins var fluttur á brott með kranabíl til frekari skoðunar. Leitað er að lífsýnum og annars konar sýnum sem verða rannsökuð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fannst blóð bæði heima hjá manninum í Stórholti og inni í jeppanum. Haglabyssa fannst á heimili mannsins en ekki er endilega talið að byssan tengist hvarfi konunnar. Byssan fannst á öðrum stað í húsinu en vísbendingarnar um hvarf konunnar. Síðast spurðist til konunnar á sunnudagsmorgun og er talið að hún hafi verið á heimili mannsins. Leit lögreglu hófst eftir að ættingjar konunnar leituðu til lögreglunnar. Þegar blaðið fór í prentun í gær hafði ekki enn spurst til konunnar. Konan hafði áður kært manninn fyrir líkamsárás en hann var sýknaður vegna ónægra sannanna. Ingimundur Pétursson, hjá Félagi einstæðra foreldra, segir félagið hafi kært manninn síðasta sumar fyrir eignarspjöll á húsnæði á Öldugötu sem félagið átti og konan leigði. Hann segir lögregluna hafa fallið frá því máli.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira